Færslur: 2012 Janúar
17.01.2012 23:45
lífið núna
Rútína er loksins að detta inn hjá okkur mæðgunum, rútínuleysið um jólin og áramótin fór aðeins með okkur og var snúllan komin upp á lagið með að fara að sofa um tíu leitið, og þið ættuð einhver að þekkja það að þegar barnið er sofnað þarf mamma smá "me time" .. en í raun hefði hún bara átt að fara að sofa líka þar sem fótaferðatími á þessum bæ virka daga er 06:10. Tók á það ráð að stytta dagslúrinn í klukkutíma og er snúllan núna oftast sofnuð um hálf níu, það munar nú um það!

Mamman er svo að fara til útlanda og andlegur undirbúningur í fullum gangi! Þetta verður lengsti samfeldi tími sem ég sé ekki litlu snúlluna mína og hef ég smá áhyggjur af því að fá heimþrá. En eins og ég segi þá er andlegur undirbúningur í fullum gangi hehe og ég ætla að hafa með mér bækur sem ég hef ekki komist yfir að lesa, hafa fullt af tónlist í spilaranum og ætla að njóta þess að vera í útlandinu á skíðum.. swoob swoob...

Litla Rós (sem ég kalla stundum litla dós) er að uppgötva vald sitt til að hafa áhrif á umhverfið og gerir orðið kröfur um eitt og annað. Sumt er auðvelt að skilja eins og það að hún vill núna alltaf fá trefil áður en við förum út.. einfalt þar sem mamman er þessa dagana alltaf með trefil. Um helgar þegar við gefum okkur betri tíma til að vakna og taka okkur til heldur en virka morgna þá tekur hún litla handspegilinn sinn og eyrnapinna og er að "snyrta sig" á meðan mamman málar sig.. já það læra börnin sem fyrir þeim er haft. Hún er svolítil pjattrófa og til dæmis vill hún alls ekki vera með neitt á höndunum og þarf ég að þurrka oft hendurnar hennar þegar hún er að borða eitthvað með höndunum.

Hún hefur síðustu vikur svo komist á bragðið að horfa á teiknimyndir.. já eða allavega biðja um að þær séu í sjónvarpinu þó hún horfi ekkert endilega á alla myndina. Shrek er í miklu uppáhaldi og biður hún alltaf um að horfa á hann. Mamman laumar svo öðru hverju einhverju öðru í tækið en oftar en ekki þá biður hún um að skipt verði um mynd þegar hún sér að þetta er ekki Shrek.. reyndar fær Rio oft að ganga óslitið en hún biður sjaldan um þá mynd.
Litla Rós byrjar svo á leikskóla í næsta mánuði! litla nýfædda barnið mitt! ég get svo svarið það, hún er orðin svo stór litla skinnið. Ég hlakka mikið til að sjá hvernig þetta mun ganga og á ekki von á neinu öðru en að hún fýli þetta í botn! Hún er auðvitað orðin elst hjá dagmömmunni og þarf að fara að fá fleiri áskoranir og tækifæri til að þroskast. Mamman passar núna alltaf upp á að láta hana klæða sig sjálfa úr skónum og hjálpar bara pínu lítið þegar hún fer úr öllu hinu, það er góð þolinmæði æfing fyrir okkur báðar.

Í fyrradag var snúllan að lesa bók heima hjá ömmu sinni þegar mamman kom til baka úr ræktinni. Mamman vildi auðvitað eyða tíma með snúllunni og ætlaði að fara að lesa með henni þessi bók. Snúllan horfði á mig stórum augum, stóð upp og náði í svipaða bók sem hún lagði í fangið á mér, tók svo sína bók til sín brosti og benti á bókina mína.. greinilegt að ég átti bara að lesa mína eigin bók en ekki frekjast í að lesa hennar. Mömmunni fannst þetta svo mikið þroskamerki að ég ætla ekki einu sinni að fara út í það! hehe já og í kjölfarið uppgötvaði ég að þarna hefði ég þurft að hafa hitt foreldrið á staðnum til að dást að barninu með mér, held stundum að öllum hinum finnist ég tala of mikið um barnið mitt á köflum.. en sorry þið verðið bara að taka við þessu dúllurnar mínar og ég skal í staðin hlusta á ykkur dást að börnunum ykkar, díll?
XOXO ykkar mommy B
12.01.2012 22:06
Barnið mitt er Hrútur..
Rambó leikfélaganna er mættur á svæðið. Með barn í hrútsmerkinu mega
foreldrar búast við miklu fjöri á heimilinu því það ríkir engin
lognmolla í kringum hrútinn. Ekki ætlast til þess að barnið sitji kyrrt með hringlu. Þetta er barnið sem veifar þér ofan af hæsta tré, alls óhrætt við að taka áhættu. Hrútsbarnið er allt annað en hljóðlátt og lætur oft vel í sér heyra. Sem eldsmerki er hrúturinn orkumikill og hefur ávallt eitthvað fyrir stafni.
Verður erfitt að ráða við litla hrúta? Það er líklegra en ekki. Foreldrar ættu eins fljótt og hægt er að kenna þessu barni að vinna með öðrum börnum. Að deila einhverju með öðrum er eitthvað sem kemur ekki af sjálfu sér - það þarf að kenna litlum hrútum. Þeir eru einnig ákaflega tapsárir.
Þeir þrá athygli og eiga mjög auðvelt með að verða sér úti um hana með ýmsum aðferðum. Hrútar eru fæddir leiðtogar og ef þú ætlar að hafa eitthvað að segja er betra að láta þá vita með afgerandi hætti hver er við stjórnvölinn því annars er eins líklegt að stjórnin verði tekin úr þínum höndum.
Lítill hrútur er oft eins og ótemja, lítið gefinn fyrir að hlýða reglum og vera þægur nema þegar honum hentar. Vegna þess hve hann er orkumikill er nauðsynlegt að hann fái mikla hreyfingu. Hann verður að fá að hlaupa um og róta til heima hjá sér.
Ef hann fær ekki útrás fyrir orkuna verður hann pirraður og ergilegur. Honum líður best í lifandi og fjörugu umhverfi. Þar sem fljótfærni og óþolinmæði eru meðal veikleika hans þarf að kenna honum að hægja á sér og telja upp að tíu áður en hann rýkur af stað. Einnig þarf að venja hann á að ljúka því sem hann byrjar á.
(mynd af stjornumerki.is og texti stolin af barnalandi)
Litla Rós er Hrútur
XOXO ykkar mommy B
09.01.2012 16:15
Gleðilegt nýtt ár!!
Gleðilegt Nýtt ár elsku hjartans dúllurnar mínar!!
Þetta ár verður AWSOME!

Við mæðgurnar á gamlárskvöld
en já nýtt ár eina ferðina enn..
Já ég var sko rétt að venjast því að skrifa 2011! Get svo svarið það. En þetta verður bara svo ótrúlega skemmtilegt ár og ég er ekkert nema hamingjusöm að það er byrjað!
Margt spennandi framundan skal ég segja ykkur.. hér er svona þetta helsta;
-
Verð 30 ára! og þakklát fyrir hvert ár sem bætist við, það er nefnilega bara um tvennt að velja nr1 að eldast og nr2 að drepast.. og ég er voða glöð með að eldast bara J
-
Fara til Frakklands á skíði í heila viku! hlakka mega sega til skal ég segja ykkur!
-
Útskrift frá Meistaraskólanum fyrir næstu jól!
-
Ólöf Rós verður 2 ára! Páska afmæli í ár!
-
Heilsumarkmiðum skal náð.. búin að skrá mig í 10 vikna námskeið hjá BP!
woop woop -
og hellings meira sem ég á eftir að finna upp! víííí
Hvað ætlar þú að gera skemmtilegt?
XOXO ykkar B og ÓR
- 1
